VBS fjárfestingarbanki hf. var tekinn til slitameðferðar 9. apríl 2010 með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Hæstaréttarlögmennirnir Hróbjartur Jónatansson og Þórey S. Þórðardóttir og Friðbjörn Björnsson löggiltur endurskoðandi voru skipuð til starfa í slitastjórn VBS fjárfestingarbanka hf. Framkvæmdastjóri slitastjórnar VBS fjárfestingarbanka hf. er Þorsteinn Ólafs.

Carnegie Heimssjóður
Sjóðsstjóri: Carnegie Asset Management, Copenhagen
Stofndagur: 15.desember, 1995
Grunnmynt: USD
Lágmarks fjárfesting: USD 1,000
Stærð sjóðs: USD 2658.99
Árleg umsýsluþóknun: 1,6%
Viðskipti: Daglega
Viðmiðunarvísitala: MSCI World
ISIN: LU0086737722

Heimssjóður Carnegie er alþjóðlegur sjóður sem samanstendur aðallega af hlutabréfum fyrirtækja hvaðanæva úr heiminum og úr flestum greinum atvinnulífsins. Fjárfestingarstefna sjóðsins er að fjárfesta til lengri tíma, í hlutabréfum traustra fyrirtækja um allan heim sem eru leiðandi í sinni grein. Með því næst það takmark að dreifa áhættunni og um leið auka ávöxtunarmögleika.

Einungis er fjárfest í 20-30 félögum, sem yfir lengri tíma litið gefa mikla möguleika  á jákvæðri ávöxtun. Að fást við fá félög gefur sjóðstjórum kleift að fá dýpri þekkingu á hverju fyrirtæki fyrir sig og þar með minnka áhættuna. Markmið sjóðsins er að ná að skilja framtíðarhorfum (trends) ásamt því að bjóða uppá einstaka samsetningu af sérvöldum fyrirtækjum.